Eftir Elísu

Eftir Elísu er verkefni sem unnið er af börnum og barnabörnum Elísu Steinunnar Jónsdóttur til að kynna list og líf hennar.

Steina

Þroskaleikfang og stofustáss

Leikfangið Steina er nytjalist sem listakonan Elísa Steinunn Jónsdóttir hannaði árið 1961. Fátt var um íslensk leikföng á þeim tíma og í stað þess að kaupa dæmigerð innflutt leikföng þá fór hún að hanna sín eigin fyrir börnin sín, því eins og allar mæður vildi hún það besta fyrir þau. Þannig varð leikfangið sem er nefnt eftir henni, Steina, til.

Nú, 65 árum síðar, hefur Steina í fyrsta sinn verið sett í framleiðslu og hægt að kynna það fyrir íslenskum börnum, foreldrum þeirra og unnendum íslenskrar hönnunar. Leikfangið er ætlað börnum frá þriggja ára aldri og er það framleitt úr beyki sem er talinn besti efniviðurinn fyrir barnaleikföng í dag.

Með því að setja Steinu í framleiðslu vilja ættingjar Elísu Steinunnar segja frá þeirri fallegu sögu sem liggur að baki leikfanginu og auka úrval íslenskra leikfanga fyrir íslensk börn að leika sér með.

Steina er unnin úr við úr sjálfbærum beykiskógum og er handsmíðað í Póllandi á litlu fjölskyldureknu smíðaverkstæði.

Sagan hennar Elísu

Úrval til sölu

Steina fæst í öllum verslunum Epal

Upprunalega- (11.900 kr.)

Þessi útgáfa af Steinu vísar í sömu liti og röðun þeirra sem Elísa vann með upprunalega útgáfu leikfangsins árið 1961.

Versla

Sérútgáfa Nr. 1 - (11.900 kr.)

Litirnir á þessari sérútgáfu af Steinu voru unnir af barnabörnum Elísu.

Versla